year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 21 | Þúsundir íbúa Colorado í Bandaríkjunum hafa flúið að heiman undan víðfeðmum gróðureldum í ríkinu. Óttast er að hundruð íbúðarhúsa séu brunnin til grunna. | Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Colorado í Bandaríkjunum vegna gróðurelda sem brenna stjórnlaust í miklu hvassviðri. Tugþúsundir íbúa í tveimur bæjum í ríkinu hafa verið fluttar á brott. Fjöldi íbúðarhúsa og annarra bygginga er brunninn til grunna.
Eldarnir kviknuðu í gærmorgun, að líkindum þegar háspennulínur sl... | Þúsundir íbúa Colorado í Bandaríkjunum hafa flúið að heiman undan víðfeðmum gróðureldum í ríkinu. Óttast er að hundruð íbúðarhúsa séu brunnin. |
2021 | 21 | Áramótabrennur hafa verið slegnar af víðast hvar á landinu. Á mörgum stöðum á þó að halda flugeldasýningar sem fólk getur horft á úr öruggri fjarlægð og sums staðar verður haldin svokölluð bílabrenna. | Brennur eru fastur liður víða um land á áramótunum, en nú annað árið í röð hafa þær flestallar verið slegnar af vegna COVID. Á fjölmörgum stöðum verða haldnar flugeldasýningar í staðinn í samstarfi við björgunarsveitir sem verður hægt að fylgjast með og dást að úr öruggri fjarlægð og án nokkurra hópamyndana.
Sum sveita... | null |
2021 | 21 | Formaður Félags íslenskra bókaútgefenda segir að kórónuveirufaraldurinn hafi haft mikil áhrif á kauphegðun fólks í desember. Hann telur að jólavertíðin hafi verið eitthvað minni í ár en í fyrra en að árið í heild hafi hins vegar verið mjög gott fyrir bóksala. | Tæplega þúsund bækur voru gefnar út á þessu ári samkvæmt Bókatíðindum, rúmlega hundrað fleiri en í fyrra. Skáldsaga Yrsu Sigurðardóttur Lok, lok og læs var í efsta sæti á lista yfir mest seldu bækurnar síðustu vikuna fyrir jól. Þar á eftir kom skáldasagan Sigurverkið eftir Arnald Indriðason.
Heiðar Ingi Svansson, forma... | null |
2021 | 21 | Edda Falak, Alec Baldwin, Sölvi Tryggvason og Christian Eriksen var algengasta leitarefnið á leitarvélinni Google hér á landi á árinu sem er að líða. Þá var leitað að fyrirbærinu Only fans í auknum mæli í ár, miðað við árið 2020. | Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt auglýsingastofunnar Sahara. Aukning í leit að Eddu Falak jókst um rúmlega 1.100 prósent á milli ára. Nafn Eddu var slegið inn að meðaltali 2.380 sinnum á mánuði, en mest var leitað eftir henni í maí þegar það var slegið inn 4.400 sinnum. Af stjórnmálamönnum var nafn Áslaug... | null |
2021 | 21 | Þriðja þáttaröðin af Ófærð og Netflix-þættirnir Katla fengu hæstu endurgreiðslu framleiðslukostnaðar á þessu ári. Báðar þáttaraðirnar koma úr smiðju RVK Studios, framleiðslufyrirtækis Baltasars Kormáks. Raunveruleikaþættirnir The Challenge fengu hæstu endurgreiðsluna af erlendum verkefnum. | Hægt er að fá 25 prósent af framleiðslukostnaði kvikmynda og sjónvarpsefnis hér á landi endurgreiddan að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
58 innlend verkefni fengu endurgreiðslu úr ríkissjóði á árinu sem er að líða og 12 erlend.
Íslensku Netflix-þættirnir Katla fengu hæstu endurgreiðsluna eða 448 milljónir sem þýðir að s... | null |
2021 | 22 | Færeyska landsstjórnin heldur velli. Í síðustu viku var tvísýnt um áframhaldandi stjórnarsamstarf eftir að tveir þingmenn stjórnarflokkanna studdu tillögu stjórnarandstöðunnar um réttindabætur fyrir samkynja foreldra. | Menntamála- og utanríkisráðherrann Jenis af Rana og Miðflokkurinn hótuðu að slíta samstarfinu við Sambandsflokkinn og Fólkaflokkinn vegna málsins.
Allt frá því að ríkisstjórnin var mynduð 2019 hefur ríkt togstreita innan hennar um málefni hinsegin fólks en fulltrúar Miðflokksins þvertaka fyrir stuðning við nokkra löggj... | null |
2021 | 22 | Sinubruni varð í sumarbústaðabyggð á Flötum skammt frá Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í gærkvöldi. Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, segir að eldurinn hafi líklega kviknað út frá flugeldum. Hann biður fólk að fara varlega á gamlárskvöld. Um einn hektari lands brann og þr... | Það var sem sagt verið að skjóta upp flugeldum og hérna, það kemur bara, er glóð eða annað sem kemst í sinu eða þurran gróður. Það er búið að vera núna bæði hvasst og þurrt þarna upp frá þannig að það kviknar í gróðri. Fólk þarna á svæðinu, sumarbústaða eigendur, reyna að slökkva eldinn en ráða ekki við hann þannig han... | Flugeldar ollu að líkindum sinubruna í sumarbústaðabyggð á Flötum skammt frá Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í gærkvöldi. |
2021 | 22 | null | Allt að þriggja sólarhringa bið getur verið eftir niðurstöðu úr PCR-prófum. Mikið álag er á þeim sem greina og vinna sýnin.
Á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er greint frá því að óvenju langan tíma taki nú að fá nðurstöðu úr sýnatöku, allt að 72 klukkutíma, eða þrjá sólarhringa. Reynt er að stytta þessa bið og fól... | Allt að þriggja sólarhringa bið er eftir niðurstöðu úr PCR-prófum hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. |
2021 | 22 | Snjóflóðasérfræðingur á Veðurstofunni hvetur fólk sem ætlar til fjalla, á Tröllaskaga og í Eyjafirði á næstu dögum, til að fara varlega og fylgjast vel með spám. Töluverð hætta er þar á snjóflóðum í fjöllum. | Eftir snjólétta síðustu mánuði hefur snjó kyngt niður víða á norðanverðu landinu síðustu daga. Sigurdís Björg Jónsdóttir, snjóflóðasérfræðingur á Veðurstofunni hvetur fólk á svæðinu til að fylgjast vel með snjóflóðaspám.
Núna er staðan sú, hérna á Norðurlandi, að það er búið að bætast mikill snjór, síðustu daga en á un... | Töluverð hætta er á snjóflóðum í fjöllum á Tröllaskaga og í Eyjafirði. Snjóflóðasérfræðingur hvetur útivistarfólk til að fara varlega og fylgjast vel með spám. |
2021 | 22 | Frá og með deginum í dag léttir Íslensk erfðagreining undir með veirufræðideild Landspítalans og greinir öll innanlandssýni. Kári Stefánsson segir að það sé út í hött að Landspítalinn geti ekki höndlað stöðuna betur. | Gríðarlegt álag hefur verið á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans síðustu daga og hafa sýni sem komið hafa inn til greiningar verið langt umfram það sem deildin getur annað á hverjum sólarhring. Guðrún Svanborg Hauksdóttir, yfirlæknir deildarinnar, segir að skafl af sýnum hafi myndast þrátt fyrir að unnið sé að gre... | Íslensk erfðagreining greinir öll innanlandssýni frá og með deginum í dag. Kári Stefánsson segir að sú ákvörðun hafi verið einföld, eftir símtal frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni í gærkvöld. |
2021 | 22 | Forseti Rússlands vonast til þess að hægt verði að leysa ágreininginn við Bandaríkjamenn við samningaborðið. Forsetar landanna ræðast við í síma í kvöld. | Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist vera sannfærður um að hægt verði að leysa ágreininginn við Bandaríkjamenn við samningaborðið. Forsetar landanna ræðast við í síma í kvöld, í annað sinn á innan við mánuði.
Spenna milli Rússlands og vesturveldanna hefur vaxið undanfarna mánuði, einkum vegna fjölmenns herliðs Rús... | Forseti Rússlands vonast til að hægt verði að leysa ágreininginn við Bandaríkjamenn við samningaborðið. Forsetar landanna ræðast við í síma í kvöld. |
2021 | 22 | Álag vegna faraldursins hefur fælt fólk úr vinnu á Landspítalanum, þrátt fyrir aukagreiðslur, segir Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma á Landspítala. Hann segir að til greina komi að fá starfsfólk sem er í einangrun til starfa. | Það er bara eitthvað sem þarf að skoða. Ég þekki það líka frá Bandaríkjunum og víðar og í Svíþjóð þegar verst lét. Þegar fólk var orðið einkennalaust þá fór það bara að vinna. Þannig að við þurfum bara að skoða það. Auðvitað verðum við að sinna verkefninu. Það segir sig sjálft. Þá þurfum við að gera það sem er skynsaml... | null |
2021 | 22 | Handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon er íþróttamaður ársins 2021. Hann segist afar stoltur af nafnbótinni enda hafi hann fylgst með mörgu af uppáhalds íþróttafólki sínu vinna titilinn. Valið var kunngjört í beinni útsendingu á RÚV í gærkvöld. | TOM: íÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS ER ÓMAR INGI
Ómar leikur með úrvalsdeildarliði Magdeburg í Þýskalandi. Hann varð markakóngur deildarinnar í vor og átti næstflestar stoðsendingar, auk þess sem hann var valinn í lið ársins. Ómar hefur verið einn af bestu leikmönnum liðsins á þeirri leiktíð sem nú stendur yfir en Magdeburg tróni... | null |
2021 | 22 | Hætt er við því að skerða þurfi félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun í Reykjavík vegna fjölda starfsmanna sem eru í einangrun eða sóttkví. Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að reynt sé að halda allri starfsemi gangandi, en bráðlega þurfi að forgangsraða þjónustunni vegna mann... | Velferðarsvið Reykjavíkurborgar heldur úti um 100 starfsstöðvum, þar af 70 sólarhringsstofnunum. Starfsmenn eru um 3.400 en nú eru 150 þeirra ýmist í sóttkví eða einangrun. Sviðsstjóri segir erfiðara að leysa starfsfólk af á ákveðnum starfsstöðvum, til dæmis á heimilum fólks með fatlanir þar sem ákjósanlegast er að sta... | Svo gæti farið að skerða þurfi heimaþjónustu og heimahjúkrun í Reykjavík. Yfir 150 starfsmenn velferðarsviðs eru í einangrun eða sóttkví. |
2021 | 23 | Yfirmaður bólusetninga hjá sóttvarnalækni segir að ákaflega lítil áhætta sé fólgin í því að bólusetja börn á aldrinum 5 til 11 ára. Rannsóknir bendi til þess að börn fái síður aukaverkanir af bóluefnum en fullorðnir. | Byrjað verður að bólusetja börn á aldrinum 5 til 11 ára í næsta mánuði. Bólusett verður í skólum og heilsugæslan heldur utan um framkvæmdina í samstarfi við skólastjórnendur.
Rætt var um málið á opnum fundi velferðarnefndar Alþingis í morgun. Þingmenn spurðu meðal annars út í mögulegar aukaverkanir og rannsóknir á þeim... | Rannsóknir benda til þess að börn fái síður aukaverkanir af bóluefnum en fullorðnir. Þetta sagði yfirmaður bólusetninga hjá sóttvarnalækni á fundi velferðarnefndar í morgun. |
2021 | 23 | 21 sjúklingur liggur á spítalanum með COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 60 ár. Sex eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél. | 852 bættust við í eftirlit covid göngudeildar í gær, sem gefur vísbendingu um fjölda smita í gær. Yfir 200 starfsmenn Landspítalans eru ýmist í einangrun eða sóttkví. Starfsfólk sem er í sóttkví hefur verið kallað til vinnu að undangengnu pcr-prófi.
Ólafur Guðlaugsson er yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítalans
Sag... | null |
2021 | 23 | Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafa óskað eftir því að hæstiréttur heimili útgöngubann á nýársnótt og á þrettándanum. Það er gert í ljósi þess að tæplega fjögur þúsund manns greindust með kórónuveiruna á eyjunum í gær. | Þetta gengur þannig fyrir sig að útaf mannúðarsjónarmiðum vill rétturinn ekki samþykkja að það sé heimilt að loka fólk inni. Þannig að þeir óska alltaf eftir því að það megi setja á útgöngubann. Rétturinn hefur alltaf frá því í sumar neitað en núna er staðan þannig að það er bara mjög líklegt að það verði sett á svona ... | Stjórnvöld á Kanaríeyjum vilja koma á útgöngubanni á gamlársdag og á þrettándanum. Tæplega fjögur þúsund manns greindust með kórónuveiruna á eyjunum í gær. |
2021 | 23 | Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist ekki ætla að leggja til breytingar á lengd sóttkvíar og einangrunar að svo komnu máli. Ef rétt reynist að alvarleg veikindi séu ekki eins algeng vegna omíkron-afbrigðisins séu komnar forsendur til að hverfa aftur til eðlilegra lífs. | Þrýst hefur verið á breytingar á lengd sóttkvíar og einangrunar þar sem um 13.000 manns eru ýmist í sóttkví eða einangrun hér á landi. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna stytti einangrun einkennalausra í vikunni í fimm daga, en hér á landi er hún tíu dagar.
Þórólfur vill fá álit Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins áður en... | Sóttvarnalæknir ætlar ekki að leggja til breytingar á lengd einangrunar og sóttkvíar að svo stöddu. Hann vill bíða álits annarra, til dæmis Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins. |
2021 | 23 | Annað árið í röð verða sóknarbörn Þjóðkirkjunnar að láta sér nægja streymi og útvarpsmessur um áramót. Biskup tilkynnti í gær að ekkert helgihald yrði í kirkjum landsins um áramótin. | Séra Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem hún greindi frá ákvörðun sinni um að allt helgihald í kirkjum landsins um áramótin, yrði fellt niður í ljósi vaxandi fjölda smitaðra. Pétur Georg Markan, biskupsritari segir stofnunina vera að setja sig í lið með stjórnvöldum.
Það er k... | null |
2021 | 23 | Val Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins verður kunngjört í kvöld í beinni útsendingu á RÚV. Sex karlar og fjórar konur eru í efstu tíu sætunum. | Sex af þeim tíu efstu í kjörinu í ár hafa aldrei áður komist inn á topp 10 listann. Þá eru tveir á listanum sem hafa hlotið nafnbótina Íþróttamaður ársins. Fernt handboltafólk er á listanum í ár. Tveir einstaklingar koma úr kraftlyftingum, tveir úr fótbolta, einn úr körfubolta og einn úr fimleikum. Sex karlar og fjórar... | Val samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins verður opinberað í kvöld í beinni útsendingu á RÚV. Sex einstaklingar á topp tíu listanum eru tilnefndir í fyrsta sinn. |
2021 | 23 | Stjórnendur fréttamiðilsins Stand News í Hong Kong hafa ákveðið að loka honum eftir að sjö núverandi og fyrrverandi starfsmenn hans voru handteknir. Miðillinn barðist fyrir lýðræðisumbótum í nýlendunni fyrrverandi. | Stjórnendur fréttamiðilsins Stand News í Hong Kong hafa ákveðið að loka honum eftir að sjö fyrrverandi og núverandi starfsmenn hans voru handteknir fyrr í dag. Miðillinn barðist fyrir lýðræðisumbótum í héraðinu.
Tilkynnt var um endalok Stand News á Facebook. Þar sagði að fréttavefur miðilsins yrði hvorki uppfærður né n... | Fréttamiðlinum Stand News í Hong Kong hefur verið lokað eftir að sjö núverandi og fyrrverandi starfsmenn hans voru handteknir. Stand News barðist fyrir lýðræðisumbótum í nýlendunni fyrrverandi. |
2021 | 23 | null | Jarðskjálfti, 3,7 að stærð, varð um tvo kílómetra austur af Kleifarvatni á ellefta tímanum í morgun. Skjálftinn fannst vel á Reykjanesskaga, á höfuðborgarsvæðinu og víðar suðvestanlands. Töluvert hafði dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga í nótt.
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur er á línunni. | Jarðskjálfti, 3,7 að stærð, varð um tvo kílómetra austur af Kleifarvatni á ellefta tímanum í morgun. Töluvert dró úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga í nótt. |
2021 | 24 | Það hefur snjóað mikið á Norðausturlandi í nótt og morgun og snjór og þæfingsfærð er á vegum víða um norðanvert landið. Óvissustig er vegna snjóflóðahættu á vegum á Tröllaskaga og vegurinn um Víkurskarð er lokaður. | Nei - almennt hefur Vegagerðinni tekist að halda leiðum opnum, enda er þetta fyrst og fremst mikil snjókoma. Veðrið er víðast hvar þokkalegt, hvassast samt við ströndina og auðvitað á fjallvegum.
Það er mikill snjór hér á Akureyri - þrjátíu sentimerta jafnfallinn sjór og þungfært um mestallan bæ. Og snjórinn er víða mi... | Mikið snjóaði á Norðausturlandi í nótt og morgun og snjór og þæfingsfærð er á vegum víða um norðanvert landið. Óvissustig er vegna snjóflóðahættu á vegum á Tröllaskaga og vegurinn um Víkurskarð er lokaður. |
2021 | 24 | Vitað er um tvo leikmenn í íslenska karlalandsliðshópnum, fyrir EM í handbolta í janúar, sem eru með COVID-19. Gert ráð fyrir að þeir hafi lokið einangrun og geti mætt á æfingar þegar landsliðið kemur saman í byrjun mánaðarins. | Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, greindi frá þessu í gær í samtali við íþróttadeild Stöðvar 2. Róbert vildi þó ekki nafngreina viðkomandi leikmenn en EM-hópurinn er skipaður 20 leikmönnum og var tilkynntur í síðustu viku. Guðmundur Guðmundsson sagði í samtali við RÚV eftir að landsliðshópurinn var tilkynntur... | null |
2021 | 24 | Þeim fjölgar sveitarfélögunum sem leggja á hámarksútsvar á næsta ári og Strandabyggð fékk sérstaka heimild til að fara yfir mörkin vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. | Fjögur sveitarfélög ætla að hækka útsvar á íbúa um áramót en ekkert sveitarfélag lækkar skattinn. Nánast öll sveitarfélög landsins stíga útsvarið í botn en þrjú eru svo vel stæð að þau geta lagt á lágmarsútsvar.
Helsti tekjustofn sveitarfélaga er útsvarið, skattur sem íbúar greiða af tekjum sínum. Sveitarfélög hafa ákv... | Flest sveitarfélög leggja á hámarksútsvar á næsta ári. Strandabyggð fékk sérstaka heimild til að fara yfir mörkin vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. |
2021 | 24 | Verulegt tjón varð í flugskeytaárás á hafnarsvæðið í Latakia [Lað'qijja] í Sýrlandi í nótt. Ísraelsmenn eru sakaðir um að hafa verið að verki. Þeir neita því hvorki né játa. | Eldar lýstu upp hafnarborgina Latakia [Lað'qijja] í Sýrlandi þegar flugskeytaárás var gerð á hafnarsvæðið í nótt. Sýrlendingar saka Ísraelsmenn um að hafa verið að verki. Þeir hvorki játa því né neita.
Sýrlenska ríkisfréttastofan SANA greinir frá því að árásin hafi verið gerð á fjórða tímanum í nótt. Flugskeytum hafi v... | Mikið tjón varð í flugskeytaárás á hafnarsvæðið í Latakia [Lað'qijja] í Sýrlandi í nótt. Ísraelsmenn eru sakaðir um að hafa verið að verki. Þeir neita því hvorki né játa. |
2021 | 25 | Covid-farandurinn er í miklum vexti en í gær greindust fleiri en nokkru sinni. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að halda áfram að beita sóttkví og einangrun til að hemja útbreiðsluna. Hann mun gefa skýrslu fyrir dómi í dag til að styðja þá kröfu sína að nokkrir einstaklingar sæti einangrun eftir að hafa greinst jákvæðir... | 664 greindust með covid innanlands í gær og átta á landamærunum samkvæmt þeim upplýsingum sem lágu fyrir skömmu fyrir fréttir. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki enn komið í ljós hversu margir muni þurfa að leggjast inn vegna omíkron-afbrigðisins.
Þetta er bara í miklum vexti áfram og það er og það helgast af... | null |
2021 | 25 | Yfirvöld í milljónaborginni Xi'an í Kína hafa fyrirskipað ströngustu sóttvarnaaðgerðir sem völ er á vegna fjölgunar kórónuveirusmita síðustu daga. Meðal annars er bílaumferð bönnuð í borginni. | Yfirvöld í Xi'an, héraðshöfuðborg Shaanzi í Kína, fyrirskipuðu í dag ströngustu sóttvarnaaðgerðir sem völ er á vegna fjölgunar kórónuveirusmita að undanförnu. Meðal annars verður bílaumferð bönnuð í borginni. Þeir sem brjóta reglurnar eiga yfir höfði sér sekt og tugthús. fangelsisvist yfir höfði sér.
Þrettán milljónir ... | null |
2021 | 25 | Venju samkvæmt var leikið i ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær, á öðrum degi jóla, þremur leikjum var frestað en tólf lið öttu kappi í sex leikjum. | Kórónuveiran hefur búið um sig í herbúðum nokkurra enskra liða og því var þremur af leikjum gærdagsins frestað. Í þeim leikjum sem spilaðir voru var hins vegar nóg skorað. Stærsti leikur dagsins var viðureign toppliðs Manchester City og Leicester. City komst í 4-0 í fyrri hálfleik en Leicester náði að minka muninn niðu... | null |
2021 | 26 | Íslensk stjórnvöld fóru gegn alþjóðasamningi um verndun tegunda og búsvæða með vegaframkvæmdum um Teigsskóg og þverun fjarða. Þetta fullyrða samtökin Fuglavernd, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands í sameiginlegri yfirlýsingu. | Fastanefnd Bernarsamningsins átelur íslensk stjórnvöld fyrir framgöngu sína í tengslum við vegagerð um Teigsskóg. Á fundi nefndarinnar 2. desember síðastliðinn var fullyrt að stjórnvöldum bæri ekki aðeins að fylgja íslenskum lögum og reglum í framkvæmdum sem þessum, heldur einnig tilmælum alþjóðlegra samninga um náttúr... | Íslensk stjórnvöld fóru gegn alþjóðasamningi um verndun tegunda og búsvæða með vegaframkvæmdum um Teigsskóg og þverun fjarða. Þetta fullyrða samtökin Fuglavernd, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands |
2021 | 26 | Sveitir stjórnarhersins í Mjanmar eru sagðar hafa myrt rúmlega þrjátíu manns í austurhluta landsins á Aðfangadagskvöld. Tveggja starfsmanna hjálparsamakanna "Save the Children" er saknað. | Erlendar fréttaveitur hafa eftir sjónarvottum að vígamennirnir hafi ráðist inn í þorpið, handtekið fólk og skotið að minnsta kosti þrjátíu manns til bana. Í þeim hópi voru konur og börn.
Hersveitirnar lögðu vistarverur fólksins í rúst og brenndu líkin. Karenni-mannréttindasamtökin sem starfa í Mjanmar, sem áður hét Bur... | Sveitir stjórnarhersins í Mjanmar eru sagðar hafa myrt rúmlega þrjátíu manns í austurhluta landsins á Aðfangadagskvöld |
2021 | 26 | Desmond Tutu friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrverandi erkibiskup í Suður-Afríku lést í morgun níræður að aldri. Hann var þekktur fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefunni og var ötull talsmaður mannréttinda. | Cyril Ramaphosa forseti Suður Afríku greindi frá andlátinu í morgun. Desmond Mpilo Tutu var fæddur í Klerksdorp litlum bæ vestur af Jóhannesarborg 7. október 1931. Hann hafði hug á að verða læknir en foreldrar hans höfðu ekki efni á að kosta drenginn til náms. Líkt og faðir hans varð Tutu kennari. Honum blöskraði meðfe... | Desmond Tutu friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrverandi erkibiskup í Suður-Afríku lést í morgun níræður að aldri. |
2021 | 26 | Hátt í níu þúsund manns eru í einangrun eða sóttkví. Þá fjölgar þeim sem eru á gjörgæsludeild Landspítalans vegna covid. Smitsjúkdómalæknir á Landspítala segir að þó svo að innlögnum hafi ekki fjölgað vegna veirunnar séu þeir sem liggi inni veikari en verið hefur. | Alls greindust 463 greindust með veiruna innanlands í gær og níu til viðbótar á landamærunum. Sjötíu og fimm prósent voru ekki í sóttkví. Alls eru rúmlega þrjú þúsund og fimm hundruð í einangrun með covid og ríflega fimm þúsund og eitt hundrað í sóttkví. Samanlagt eru það rúmlega átta þúsund og sex hundruð manns. Samkv... | null |
2021 | 26 | Metfjöldi umsókna barst í Frumkvæðissjóð Betri Bakkafjarðar. Margt hefur áunnist síðan Bakkafjörður varð hluti af verkefninu Brothættum byggðum en verkefnisstjóri segir væntingar vera til að fleiri og fjölbreyttari störf skapist. | Bakkafjörður hóf þátttöku sína í byggðaþróunarverkefninu Brothættum byggðum árið 2019. Þá var staða byggðarlagsins orðin mjög erfið að mati sérfræðinga Byggðastofnunar. Síðan þá hefur byggðin styrkst og hefur Frumkvæðissjóður Betri Bakkafjarðar aldrei fengið jafn margar umsóknir um styrki og í ár eða 17 talsins. Gunnar... | null |
2021 | 27 | Skjálftarnir síðustu daga finnast víða á suðvesturhorni landsins þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu og í Vogum, þar sem glös og annar borðbúnaður hristist þegar jólahaldið stóð sem hæst í gær. Ingþór Guðmundsson forseti bæjarstjórnar í Vogum segir þetta minna á skjálftahrinuna í aðdraganda eldgossins við Fagradalsfjall. | Bara í gærkvöld þá sátum við hérna í stofunni og þá svona glamraði aðeins í glösum í skápum en þeir voru frekar stuttir í gærkvöldi. En um tólf leytið þá var maður kominn upp og var svona ekki alveg sofnaður og þá kom annar skjálfti.
Og maður svona heyrði, eins og svona áður en gosið byrjaði þá voru svona skjálftar sem... | null |
2021 | 27 | Forstjóri MAST óttast að ef blóðtöku hryssna á Íslandi yrði hætt í einu vetfangi yrði fylfullum hryssum slátrað sem væri óásættanlegt. | Forstjóri Matvælastofnunar telur mikilvægt að dýravelferð verði höfð í huga hver sem ákvörðunin verður um framtíð blóðmerahalds á Íslandi. Ef ákveðið verði að hætta þessum rekstri í einu vetfangi gæti það þýtt slátrun þúsunda fylfullra hryssna, og það væri ótækt.
Hugsanlegt er að blóðtaka hryssna á nokkrum bæjum og ill... | null |
2021 | 27 | Kórónuveiran hafði mikil áhrif á ferðir flugfélaga í aðdraganda jóla. Talið er að rúmlega fjögur þúsund og fimm hundruð flugferðir hafi verið felldar niður. Flugfélögum hefur gengið illa að manna vélarnar vegna fjölda starfsmanna sem geta ekki mætt til vinnu vegna covid. | Farþegar sem voru á leið í jólafrí lentu í vandræðum víða um heim þegar flugsamgöngur fóru úr skorðum. Samkvæmt vefnum Fligtaware.com er búið að fella niður um tvö þúsund flug í dag, þar af um sjö hundruð frá flugvöllum í Bandaríkjunum. Í mörgum tilfellum er ástæðan að flugfélög geta ekki mannað vélarnar vegna þess að ... | Kórónuveiran setti strik í reikning ferðalanga um helgina. Fresta varð rúmlega fjögur þúsund og fimm hundruð flugferðum vegna þess að fjöldi starfsmanna flugfélaga gat ekki mætt til vinnu vegna veirunnar. |
2021 | 27 | Frú Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, gerði ofbeldi í garð barna á vistheimilinu á Hjalteyri að umfjöllunarefni í jólapredikun sem hún flutti í Langholtskirkju í morgun. Börn sem dvöldu á vistheimilinu hafa stigið fram og lýst kynferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi sem þau þurftu að þola af hálfu hjónanna Eina... | null | null |
2021 | 28 | Erill er hjá umferðardeild lögreglunnar í dag, aðfangadag, þar sem fjölmargir fara að leiðum látinna ástvina á þessum degi. | Lögreglumenn umferðardeildar hófu daginn á litlu jólunum um tíu leytið í morgun, áður en lagt var út í aðfangadaginn. Um tugur lögreglumanna stendur aðfangadagsvakt umferðardeildarinnar. Fossvogskirkjugarður og Gufuneskirkjugarður eru helstu vinnusvæðin en einnig er farið á vettvang í fleiri garða höfuðborgarsvæðisins.... | null |
2021 | 28 | Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur áfrýjað úrskurði alríkisdómstóls um að skjalasafn Hvíta húsið skuli afhenda rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings hundruð skjala og annarra gagna frá síðustu dögum og vikum forsetatíðar hans. | Rannsóknarnefndin hefur krafist þess að fá gögnin í hendur, með það fyrir augum að fá betri mynd af embættisfærslu forsetans fyrrverandi og hans nánustu ráðgjafa í aðdraganda árásar þúsunda stuðningsmanna Trumps á þinghúsið í Washington sjötta janúar síðastliðinn. CNN greinir frá því að nefndin hafi þegar brugðist við ... | null |
2021 | 28 | Móðir sem þarf að vera á sóttkvíarhóteli yfir jólin ætlar að vera með krökkunum sínum í rafrænni mynd í kvöld. Krakkarnir sem eru á aldrinum 16-24 ára halda jólin saman og matreiða jólamatinn. | Berglind Magnúsdóttir er ein þeirra dvelur á sóttvarnahóteli yfir jólin. Krakkarnir hennar halda jólin saman og sjá um að matreiða jólamatinn, í fyrsta sinn væntanlega.
Segir Berglind Magnúsdóttir en börnin hennar eru 16,18 og 24 ára. Sjálf lætur hún vel af dvöl sinni þótt fyrsti hálftíminn hafi verið erfiður.
En svo e... | Móðir sem verður á sóttkvíarhóteli yfir jólin ætlar að vera með krökkunum sínum í rafrænni mynd í kvöld. |
2021 | 28 | Sameinuðu þjóðirnar áætla að 530 þúsund Filippseyingar þurfi neyðaraðstoð vegna eyðilegginar sem fellibylurinn Rai olli í síðustu viku. | Sameinuðu þjóðirnar hafa hleypt af stokkunum fjársöfnun vegna mörg hundruð þúsund Filippseyinga sem þurfa á neyðarhjálp að halda vegna fellibylsins Rai sem fór yfir landið í síðustu viku. Óveðrið olli manntjóni og miklum skemmdum.
Yfirmaður mannúðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna sagði þegar hann fór yfir stöðuna í dag að ... | Sameinuðu þjóðirnar áætla að 530 þúsund Filippseyingar þurfi neyðaraðstoð vegna eyðileggingar sem fellibylurinn Rai olli í síðustu viku. |
2021 | 29 | Tveimur umræðum um fjárlagafrumvarpið er lokið á Alþingi. Meðal breytinga á því er tillaga meirihlutans um að falla frá fyrirhugaðri lækkun sóknargjaldai. Þingið kemur saman á milli jóla og nýárs fyrir þriðju umræðu. | Alþingi lauk í gærkvöld annarri umræðu um fjárlög næsta árs en meðal breytinga í meðförum þingsins má nefna eingreiðslur öryrkja upp á 53 þúsund krónur og viðbótarfjármagn upp á 150 milljónir til sálfræðiþjónustu.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur einnig samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sve... | null |
2021 | 29 | Blóðbankinn kallar eftir jólaaðstoð því lítið er til af blóði þessa dagana. Covid hefur sett strik í reikninginn þar á bæ eins og víðar. Ólöf Rún Skúladóttir er í Blóðbankanum. | null | Það er til allt of lítið að blóði í Blóðbankanum fyrir jólin. Bankinn kallar eftir blóðgjöfum. |
2021 | 29 | Samtök íþróttafréttamanna birtu í morgun nöfn þeirra tíu sem höfnuðu í efstu sætunum í kjöri samtakanna á íþróttamanni ársins 2021. Sex þeirra hafa ekki verið áður á listanum. | Samtökin hafa staðið fyrir kjörinu frá arinu 1956 og i ar voru það 29 íþróttafréttamenn frá átta fjölmiðlum sem greiddu atkvæði. Sex nýliðar eru á topp tíu listanum í ár og þá eru tveir sem hlotið hafa nafnbótina Íþróttamaður ársins áður, þeir Aron Pálmarsson, handboltamaður hjá Álaborg í Danmörku, og Júlían J. K. Jóha... | null |
2021 | 29 | Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, gagnrýnir heilbrigðisráðherra fyrir að hafa veitt undanþágur í dag, Þorláksmessu, á hertum samkomutakmörkunum. | Hertar samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti. Fjöldatakmarkanir miðast við 20 manns en ekki 50 eins og áður og afgreiðslutími veitingastaða hefur verið skertur. Tilkynnt var um reglurnar á þriðjudag og þær komu illa við veitingamenn og viðburðahaldara sem stefndu á fjölmennar samkomur á Þorláksmessu. Þeir fóru fram ... | Kári Stefánsson gagnrýnir að heilbrigðisráðherra hafi veitt undanþágur frá hertum samkomutakmörkunum í dag |
2021 | 30 | Dómstóll í Hvíta Rússlandi hefur dæmt hóp stjórnleysingja í allt að tveggja áratuga fangelsi. Þeir voru ákærðir fyrir hryðjuverk og ólöglega vopnaeign. | Fjórmenningarnir voru sakaðir um að hafa kveikt í skrifstofum öryggissveita og lögreglubílum í Gomel-héraði, austanvert í landinu. Mennirnir voru handteknir í október nærri landamærunum að Úkraínu og hafa síðan setið í fangelsi sem hvítrússneska leyniþjónustan KGB rekur.
Tveir mannanna, þeir Sergei Romanov og Igor Olin... | null |
2021 | 30 | Ástvinir fólks sem hvílir í Heydalakirkjugarði segir sárt að sjá hvernig staðið var að umhirðu garðsins í sumar. Gömul tré voru hoggin niður og þökulagt yfir blóm. Sóknarnefnd vonar að gróðurinn jafni sig og bendir á að verkið hafi verið unnið í sjálfboðavinnu. | Ættingjar fólks sem hvílir við Heydalakirkju í Breiðdal varð afar vonsvikið þegar það kom til að vitja ástvina sinna fyrir jólin. Sjálfboðaliðar sem unnu við umhirðu garðsins í sumar höfðu sagað niður gömul tré og þökulagt yfir fjölær blóm í kirkjugarðinum.
Rósa Erlendsdóttir ætlaði ásamt fjölskyldu sinni að vitja tveg... | null |
2021 | 30 | Franski fótboltamaðurinn Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City var í dag ákærður á ný fyrir nauðgun. Mendy sætir nú rannsókn vegna gruns um sjö nauðganir og eitt kynferðisbrot gegn fimm mismunandi konum. | Réttað verður yfir Mendy á nýju ári, líklega 24. janúar 2022. Brotin eiga að hafa átt sér stað á tímabilinu október 2020 til ágúst 2021. Mendy sem er 27 ára hefur verið í herbúðum Manchester City frá 2017. Hann hafði þegar leikið einn leik í ensku úrvalsdeildinni í haust, þegar fyrstu ásakanirnar komu opinberlega fram.... | null |
2021 | 30 | Tugir veitingastaða hafa í dag og í gær sent beiðnir um undanþágur frá sóttvarnareglum til heilbrigðisráðuneytisins eftir að tónleikahaldarar fengu slíkar undanþágur í gær. | Meðal þess sem felst í nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á miðnætti er að opnunartími veitingastaða styttist til klukkan 21 og 200 mega koma saman, í stað 500, á skipulagða viðburði að undangengnum hraðprófum. Undanþága hefur verið veitt vegna að minnsta kosti tvennra fjölmennra tónleika og í því ljósi hafa eigendur... | Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt að minnsta kosti tvær undanþágur frá sóttvarnareglum vegna fjölmennra viðburða. Tugir veitingamanna hafa sótt um slíkar undanþágur. |
2021 | 30 | Íbúar í Grindavík urðu áþreifanlega varir við lætin í gær og morgun. | Þetta er búið að vera svolítið svona óhugnanlegt. En krakkarnir hérna hvernig hefur þetta verið morguninn hjá okkur? Það er búið að vera svona upp og ofan og við erum búin að segja að ef þau finna fyrir þá á að kalla bingó þannig að þau vita alveg af þessu .
Þau vita alveg af þessu sko
Eftir fyrri hrinu þá endaði með g... | null |
2021 | 30 | Grindvíkingum varð bilt við í morgun þegar jörð fór að skjálfa. Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík fann vel fyrir þeim stóra. | Ég fann vel fyrir honum. Við vorum að funda hér uppi á bæjarskrifstofum og ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum manni að það var nokkuð drjúgur skjálfti
Er þetta kannski skrýtin eða óþægileg tilhugsun að sjá fram á svona skjálfta jól? Já þetta er alls ekki skemmtilegur tími og aldrei skemmtilegur en þetta er ... | null |
2021 | 31 | Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hyggst grípa til víðtækra ráðstafana vegna útbreiðslu omíkron-afbrigðisins sem nú þegar er orðið ráðandi í landinu. | Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar er orðið allsráðandi í nýjum smitum meðal Bandaríkjamanna. Samkvæmt tölum bandarísku sóttvarnastofnunarinnar má rekja um það bil 73 prósent allra nýrra smita vikuna fyrir síðasta laugardag til omíkron-afbrigðisins. Í ríkjunum Oregon og Washington á vesturströnd Bandaríkjanna og Idaho te... | Omíkron afbirgði kórónuveirunnar er orðið ráðandi í Bandaríkjunum. Joe Biden kynnir í dag viðamiklar ráðstafanir til að bregðast við útbreiðslu afbrigðisins. |
2021 | 31 | Óvenjumikil hlýindi um allt land undanfarnar vikur eru nú á undanhaldi og útlit er fyrir kólnandi veður næstu daga. Líklegast er að jólin verði rauð í ár þó ekki sé útilokað að einhvers staðar á landinu verði þau hvít. | Það hefur verið einmunablíða síðustu vikur, hlýtt í veðri, lítil úrkoma og nánast snjólaust á öllu landinu. En nú spáir kólnandi.
Já, það er heldur að kólna núna næstu dagana. Það er svalara loft og kannski aðeins að bæta í vindinn. Það verða austlægar áttir, norðaustlægar og austlægar áttir, fram yfir hátíðar
Segir Þo... | Mestar líkur eru á að landsmenn fái rauð jól í ár þó einstaka él hér og þar geti breytt því. Það spáir hæglætis veðri og góðri færð um allt land fram yfir jól. |
2021 | 31 | Laxar fiskeldi er langt komið með að rækta seiði sem það hefur sem stendur ekki leyfi til að setja í sjókvíar í Reyðarfirði. Fyrirtækið vonast til að endurheimta leyfið fljótlega. | Forsvarsmenn Laxa fiskeldis í Reyðarfirði vona að ógilding starfsleyfis fyrir aukið eldi í firðinum trufli ekki áform um seiðaútsetningu í vor. Fyritækið er langt komið með að rækta seiðin.
Laxar voru með 6 þúsund tonna starfsleyfi í Reyðarfirði og sáu fram á mikla aukningu eftir að Umhverfisstofnun veitti þeim leyfi f... | Laxar fiskeldi er langt komið með að rækta seiði sem það hefur sem stendur ekki leyfi til að setja í sjókvíar í Reyðarfirði. Fyrirtækið vonast til að endurheimta leyfið fljótlega. |
2021 | 31 | Olíuverkið Fjölnismenn eftir Jóhannes S. Kjarval seldist á metverði, 10,8 milljónir í gærkvöld, hjá uppboðshúsinu Fold. Verkið hefur fjórfaldast í verði síðan það var síðast selt fyrir nokkrum árum. | Fold uppboðshús stóð fyrir vefuppboði í gærkvöld. Meðal verka var olíuverkið Fjölnismenn eftir Kjarval sem var upphaflega í eigu Ragnars í Smára. Mikill áhugi var fyrir verkinu og buðu þátttakendur í það fram á síðustu mínútu. Það seldist á metverði, 10,8 milljónir, þegar öll gjöld eru tekin með. Á verkinu má sjá höfuð... | null |
2021 | 31 | Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, tilkynnir í dag hvaða leikmenn fara á Evrópumótið í janúar. 20 leikmenn halda á EM sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu. | Guðmundur Guðmundsson valdi 35 manna æfingahóp í byrjun desember en nú þegar hafa nokkrir leikmenn heltst úr lestinni. Arnór Þór Gunnarsson, sem var fyrirliði Íslands á HM í janúar og leikmaður Bergischer í Þýskalandi, greindi frá því fyrr í mánuðinum að hann gæfi ekki lengur kost á sér í landsliðið nema í neyð og þá s... | Það kemur í ljós í dag hvaða 20 leikmenn fara á Evrópumótið í handbolta í janúar. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, kynnir hópinn klukkan eitt. |
2021 | 31 | Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í borgarstjórnarkosningunum í vor. Eyþór segir persónulegar ástæður liggja að baki, ekki pólitískar. | Eyþór greindi frá ákvörðuninni á Facebook-síðu sinni í gærkvöld. Það stefndi í oddvitaslag innan Sjálfstæðisflokksins eftir að Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi tilkynnti fyrr í mánuðinum að hún stefndi á efsta sætið í vor. Hann segir ákvörðunina tekna óháð því með hvaða hætti sjálfstæðismenn velja á framboðslista í v... | Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í borgarstjórnarkosningunum í vor. |
2021 | 31 | Búast má við að fjöldi kórónuveirusmita muni tvöfaldast á tveimur til þremur dögum eftir að omíkron-afbrigði veirunnar verður ráðandi. Helmingur af þeim rúmlega 300 smitum sem greindust í gær voru af því afbrigði. Líftölfræðingur segir fjölgun smita í veldisvísisvexti. | Thor Aspelund prófessor í líftölfræði birti í morgun skýringarmynd á Facebook-síðu sinni, en þar er spáð hugsanlegri fjölgun kórónuveirusmita hér á landi. Nú er svokallaður tvöföldunartími, það er þeir dagar sem tekur fjölda smita að tvöfaldast 6,5, sem þýðir að smitfjöldinn tvöfaldast á tæpri viku. Thor spáir að þessi... | Helmingur þeirra kórónuveirusmita sem greindust í gær var af omíkron afbrigði veirunnar. Ljóst er að afbrigðið er að taka yfir að mati líftölfræðings sem spáir því að fjöldi smita muni senn tvöfaldast á tveimur til þremur dögum. |
2021 | 32 | Tvö hundruð og tuttugu smit greindust innanlands eftir sýnatökur gærdagsins. Þá voru átján smit á landamærunum. Einn lést af völdum veirunnar á Landspítalanum á laugardag. Sóttvarnalæknir leggur til ný fjöldatakmörk í minnisblaði sem hann skilaði heilbrigðisráðherra í morgun. Ráðherra greinir frá sóttvarnaaðgerðum að l... | Már Kristjánsson, smitsjúkdómalæknir á Landspítala var svartsýnn á horfurnar í viðtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun. Smitum hafi fjölgað hér mjög og hlutfall smitaðra í sýnatökum hefur aldrei verið hærra. Ellefu liggja á spítalanum með veiruna og tveir þeirra á bráðamóttöku.
Þannig að ef við leggjum þetta allt s... | null |
2021 | 32 | Joe Biden, Bandaríkjaforseti, varð fyrir áfalli í gær þegar samflokksmaður hans Joe Manchin tilkynnti að hann myndi ekki styðja innviðafrumvarp forsetans. | Frumvarpið er hornsteinninn í efnahagsstefnu forsetans en það kveður á um einnar komma níu (1,9 trillion dollars) billjóna dollara fjárfestingu í innviði, heilbrigðis- og menntamál, og aðgerðir vegna loftlagsmála. Fulltrúadeildin, sem að meirihluta er skipuð Demókrötum, samþykkti frumvarpið i nóvember og er það nú í me... | Joe Biden virðist ætla að mistakast að koma innviðafrumvarpi sínu í gegnum öldungadeildina eftir að samflokksmaður hans í Vestur-Virginíu kvaðst ekki styðja frumvarpið. |
2021 | 32 | Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er enn og aftur kominn í vandræði vegna meintra brota á sóttvarnarreglum. Bresk dagblöð birtu í morgun mynd sem sýnir garðveislu í Downingstræti 10 frá þeim tíma sem samkomutakmarkanir voru hvað harðastar. | Boris Johnson hefur verið undir miklum þrýstingi eftir að upp komst að starfslið hans hafði efnt til vinnustaðafagnaðar fyrir síðustu jól, þrátt fyrir strangar samkomutakmarkanir. Í dag birtust svo myndir úr bakgarði Downingsstrætis 10 sem tekin var í maí í fyrra. Myndin sýnir Boris, eiginkonu hans og 17 aðra úr starfs... | Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er enn og aftur sakaður um að hafa farið á svig við sóttvarnareglur eftir að myndir birtust af honum og starfsliði hans í bakgarði Downingstrætis 10. |
2021 | 32 | Japanski auðkýfingurinn Yusaku Maezawa og Yozo Hirano aðstoðarmaður hans lentu á steppum Kasakstan í nótt eftir tólf daga dvöl í alþjóðlegu geimstöðinni. | Þar dvöldu ferðalangarnir ásamt sjö manna áhöfn geimstöðvarinnar sem leggur stund á margvíslegar vísindarannsóknir. Maezawa dundaði sér hins vegar við að taka upp myndbönd af hversdagslegum athöfnum á borð við að bursta tennur og bregða sér á klósettið. Eins sýndi hann vandkvæði við að neyta matar, hvernig geimfarar so... | null |
2021 | 32 | Sex varamenn tóku sæti á Alþingi í dag eftir að jafnmargir þingmenn fóru í einangrun vegn covid-smits. Þingmennirnir nýju sögðust hafa haft aðrar áætlanir um jólin, en ætla að mæta galvaskir til að afgreiða fjárlög og fleira sem þarf að klára fyrir áramót. | Allur þingflokkur Viðreisnar er smitaður af kóróunuveirunni og því mikil breyting þar. Af þeim fimm þingmönnum sem tóku sæti á Alþingi í dag hefur aðeins einn, Jón Steindór Valdimarsson, setið á þingi áður. Oddný G, Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar er einnig með covid og því tók Viktor Stefán Pálsson sæti henna... | null |
2021 | 32 | Noregur á þrjá fulltrúa í úrvalsliði HM kvenna í handbolta. Liðið fagnaði fjórða heimsmeistaratitlinum í gær, þeim þriðja undir stjórn Þóris Hergeirssonar. | Noregur vann Ólympíumeistara Frakklands með fimm marka mun, 27-22, í úrslitaleiknum í gær. Noregur fór því taplaust í gegnum heimsmeistaramótið en þetta er í fjórða sinn sem þær norsku vinna gullverðlaun á HM. Þórir Hergeirsson hefur verið aðalþjálfari Noregs frá árinu 2009. Hann hefur nú unnið 13 verðlaun með norska l... | Norska kvennalandsliðið varð í gær heimsmeistari í handbolta undir stjórn Þóris Hergeirssonar. |
2021 | 33 | Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir kórónuveirufaraldurinn í veldisvexti. Sjö daga nýgengi hefur ekki verið hærra frá upphafi faraldursins og tveir þriðju þeirra 209 sem greindust í gær voru utan sóttkvíar. Núgildandi innanlandsaðgerðir renna út á miðvikudaginn, hann vinnur nú að nýjum tillögum til heilbrigðisráðhe... | Við erum að sjá veldisvöxt núna, við erum að sjá omíkron afbrigðið hjá æ fleiri
Hvað hafa margir greinst með omíkron afbrigðið hér á landi? Síðustu töur í gær voru eitthvað um 160 manns, en ég held að það eigi eftir að greinast til munamiklu fleiri.
209 kórónuveirusmit greindust í gær, þar af 200 innanlands og um þrið... | Sóttvarnalæknir segir að kórónuveirufaraldurinn sé í veldisvexti. Nýgengi smita hefur aldrei verið hærra. Hann vinnur að nýjum tillögum til heilbrigðisráðherra og leggur hugsanlega til að þær taki gildi áður en núgildandi aðgerðir renna út á miðvikudaginn |
2021 | 33 | David Frost, ráðherra Brexit-mála, hefur sagt skilið við ríkisstjórn Borisar Johnson. Aukinnar óánægju gegnir innan Íhaldsflokksins um embættisfærslur forsætisráðherrans og Verkamannaflokkurinn sækir í sig veðrið í skoðanakönnunum. | David Frost var aðalsamningamaður Breta við Evrópusambandið í aðdraganda útgöngu þeirra úr sambandinu. Hann hefur undanfarið unnið af kappi að áframhaldandi samningagerð og reynt að leysa hnúta í málefnum Norður-Írlands.
Ástæða afsagnarinnar er sögð vera óánægja hans með pólítíska stefnu stjórnarinnar og ekki síst áætl... | David Frost, ráðherra Brexit-mála, hefur sagt skilið við ríkisstjórn Borisar Johnson vegna óánægju með hertar sóttvarnareglur í landinu. Verkamannaflokkurinn sækir í sig veðrið í skoðanakönnunum |
2021 | 33 | Mannlaust tveggja hæða íbúðarhús brann í norska bænum Ask í Gjerdrum í nótt. Húsið stendur innan þess svæðis þar sem jarðfall varð 30. desember á síðasta ári og bæjarstjórinn segir brunann ýfa upp óþægilegar minningar. | Enginn hefur búið á svæðinu næst jarðfallinu frá því það hreyf með sér níu hús og varð tíu að bana. Engin hætta var á að eldurinn breiddist yfir í nærliggjandi hús en slökkvilið réði niðurlögum hans klukkan tvö í nótt að staðartíma.
Vegna hættu á jarðfalli var erfitt fyrir slökkvilið að athafna sig og því var notast vi... | null |
2021 | 33 | Dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar segir niðurstöðu Landsréttar í Geirfinnsmáli í máli Tryggva Rúnars áfall. Afkomendur hans íhuga að fara áfram með málið fyrir dómstólum og jafnvel til Mannréttindadómstóls Evrópu. | Afkomendur Tryggva Rúnars Leifssonar telja niðurstöðu Landsréttar hvað þau snertir mikil vonbrigði
Þau skoða leiðir til að halda áfram með málið og jafnvel að fara með það allt til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Við erum enn liggjum enn undir feldi að hugsa málið en þetta var töluvert sjokk og högg fyrir okkur að hafa þe... | Dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar segir niðurstöðu Landsréttar í Geirfinnsmáli í máli Tryggva Rúnars áfall. Afkomendur hans íhuga að fara áfram með málið fyrir dómstólum og jafnvel til Mannréttindadómstóls Evrópu. |
2021 | 33 | Ólögleg samkvæmi, óstýrilátir tónleikagestir og dansandi fólk var á meðal þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af í nótt. Grunur leikur á um að minnsta kosti þrjú brot á sóttvarnarlögum. | Fólk var að dansa, það þurfti að taka á því. Þetta segir aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu eftir annasama nótt í borginni, þar sem lögreglumenn áttu fullt í fangi með að framfylgja sóttvarnarreglum.
Skemmtanalífið ber þess keim að jólafrí eru víða hafin í framhaldsskólum og háskólum og að fólk sé orðið lan... | Ólögleg samkvæmi, óstýrilátir tónleikagestir og dansandi fólk var á meðal þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af í nótt. Grunur leikur á um að minnsta kosti þrjú brot á sóttvarnarlögum. |
2021 | 33 | Mikið álag er á rakningarteymi Almannavarna sem hefur þurft að bæta við starfsfólki. Yfirlögregluþjónn segir alvarlega stöðu komna upp. Sýni eru greind á Veirufræðideild Landspítala allan sólarhringinn. | Við erum að sjá það núna þegar tölurnar eru svona háar dag eftir dag eftir dag þá erum við með talsverðan hala á eftir okkur í rakningunni.
Segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum. Hann segir að í gær hafi hátt í 200 manns, sem höfðu greinst með covid, þurft að bíða í meira en sólarhring frá greining... | Rakningateymi Almannavarna hefur engan veginn undan því að rekja þann fjölda kórónuveirusmita sem nú greinast. Vélar Veirufræðideildar Landspítala eru í gangi nánast allan sólarhringinn við að greina sýni. |
2021 | 33 | Úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta ráðast á Spáni í dag. Noregur undir stjórn Þóris Hergeirsson og Frakkland eigast við í úrslitum. | Úrslitaleikurinn hefst klukkan hálffimm og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2. Bronsleikur Danmerkur og Spánar verður líka sýndur klukkan hálftvö. En úrslitaleikurinn verður sá tíundi sem Þórir Hergeirsson stýrir Noregi á stórmóti og sá tíundi sem Olivier Krumbholz stýrir Frökkum. Það segir því sitt um kvennalan... | null |
2021 | 34 | Vegagerðin á Norðurlandi varar við malbiksblæðingum á Þverárfjalli og Hámundarstaðahálsi. Eftirlit verður haft með vegaköflunum um helgina og er ökumönnum bent á að nota heldur aðrar leiðir ef hægt er. | Heimir Gunnarsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni, segir að ökumenn um Þverárfjall og Hámundarstaðaháls þurfi að aka varlega vegna bikblæðinga. Aðallega hefur þetta áhrif á stærri bíla og hefur þeim sem eiga erindi um Þverárfjall verið bent á að aka frekar Vatnsskarðið.
Þetta er kafli sem var tekinn fyrir seint í sumar, u... | null |
2021 | 34 | Verð á áburði til bænda hefur hækkað mikið frá því í fyrra. Tonn af áburði sem kostaði í fyrra um 57 þúsund krónur kostar í ár um 120 þúsund krónur, eða rúmlega tvöfalt meira. | Sláturfélag Suðurlands kynnti í gær áburðarverð fyrir næsta ár en á hverju ári gefa fyrirtæki sem flytja inn tilbúinn áburð út verð til bænda. SS er fyrst fyrirtækja til að kynna verðskrá sína.
Hækkanirnar eru mismiklar en sumar tegundir eru rúmlega tvöfalt dýrari en í fyrra á hvert tonn. Í umsögn Bændasamtakanna um fj... | null |
2021 | 34 | Gosstöðvarnar við Geldingadali eru mest vöktuðu gosstöðvar landsins að sögn hópstjóra Náttúruvárvöktunar Veðurstofu Íslands. Lokum á goshrinunni er lýst yfir en ekkert fullyrt um goslok. kvika er enn undir yfirborðinu. | Hraun hefur ekki runnið frá eldstöðinni við Fagradalsfjall í þrjá mánuði, svo vitað sé. Þensla er þó enn á svæðinu og þótt goshrinunni sé formlega lokið veigra sérfræðingar sér við því að lýsa alveg yfir goslokum. Náttúran sé óútreiknanleg.
Goshrinan sem hófst nítjánda mars stóð í hálft ár. Allt virðist nú með kyrrum k... | Gosstöðvarnar við Geldingadali eru mest vöktuðu gosstöðvar landsins að sögn hópstjóra Náttúruvárvöktunar Veðurstofu Íslands. Goshrinunni er formlega lokið, en ekkert fullyrt um goslok. Kvika leynist enn undir yfirborðinu. |
2021 | 34 | Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur ákveðið að falla frá breytingum á aðalskipulagi Oddeyrar sem heimilar háhýsi á svæðinu. Formaður skipulagsráðs segir niðurstöðuna vonbrigði. | Verktakinn SS byggir kynnti hugmyndir haustið 2019 um að reist yrðu allt að ellefu hæða fjölbýlishús á Gránufélagsreit á Oddeyri. Í aðalskipulagi svæðisins var gert ráð fyrir allt að fjögurra hæða húsum. Vinna við að breyta aðalskipulagi, svo heimilt yrði að byggja allt að ellefu hæða fjölbýlishús á svæðinu fór af stað... | Formaður skipulagsráðs Akureyrar segir það vonbrigði að bæjarstjórn hafi fylgt niðurstöðu íbúakosningar og ákveðið að falla frá tillögum um háhýsi á Oddeyri. Hann segir mikil tækifæri liggja í svæðinu. |
2021 | 34 | Þórir Hergeirsson er kominn með norska kvennalandsliðið í handbolta í tíunda sinn í úrslit á stórmóti. Þórir stýrði Noregi til sigurs í undanúrslitum heimsmeistaramótsins á Spáni í gærkvöld. | Noregur mætti heimakonum í liði Spánar í undanúrslitum og eftir jafnan fyrri hálfleik, þar sem staðan var 11-11 sýndi norska liðið styrk sinn í seinni hálfleik. Frábær vörn og markvarsla lagði grunninn að sex marka sigri, 27-21. Þórir Hergeirsson, sem jafnan er kenndur við heimabæ sinn á Selfossi, hefur verið aðalþjálf... | null |
2021 | 35 | Búist er við að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tilkynni um hertar sóttvarnarráðstafanir á fundi með fréttamönnum sem hefst klukkan eitt að íslenskum tíma. Metfjöldi kórónuveirusmita hefur greinst í Danmörku fjóra daga í röð. | 9999 greindust með kórónuveiruna í Danmörku í gær, fleiri en nokkru sinni fyrr. Danir hafa áhyggjur af því að sjúkrahús og heilbrigðiskerfi ráði ekki við holskeflu nýrra sjúklinga.
Þetta var Camilla Ratchke, formaður danska læknafélagsins, sem sagði lækna hafa áhyggjur af því að geta ekki sinnt öllum sjúklingum sem þur... | Metfjöldi kórónuveirusmita hefur greinst í Danmörku fjóra daga í röð. Búist er við að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tilkynni um hertar sóttvarnarráðstafanir í dag. |
2021 | 35 | Bólusetningaröfund, óróapúls, blóðmeri og örvunarskammtur. Þetta eru nokkur orð sem koma til greina í vali sem RÚV stendur fyrir á orði ársins. | Landsmönnum býðst að velja orð ársins 2021 úr fimmtán orða lista. Orðin sem komast á lista hafa einkennt þjóðfélagsumræðuna á árinu sem er að líða. Byrlun, gerendameðvirkni, hraðpróf og hitamet, sviðsmynd og undirbúningskjörbréfanefnd eru á meðal orða sem hægt er að velja um fram til þriðja janúar. Anna Sigríður Þráins... | Óróapúls, kvár, útilokunarmenning og blóðmeri eru á meðal orða sem kosið er um í kosningu RÚV um orð ársins. Allir geta verið með. |
2021 | 35 | Ósigur Íhaldsflokksins í aukakosningum í Bretlandi eykur enn á vanda formannsins og forsætisráðherrans Boris Johnson. Frjálslyndir demókratar unnu þingsætið og formaður flokksins segir að Bretar séu orðnir þreyttir á því hvernig Johnson hefur haldið á málum í kórónuveirufaraldrinum. | North Shropshire kjördæmið hefur lengi verið traust vígi Íhaldsflokksins, þar hefur flokkurinn ráðið ríkjum í 189 ár. Fyrrverandi þingmaður þess, Owen Patterson, fékk tuttugu og þrjú þúsund fleiri atkvæði en sá sem næstur kom í kosningunum fyrir tveimur árum. Í haust varð hann að segja af sér eftir að hafa verið þingma... | null |
2021 | 35 | null | Heilbrigðisráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landlæknisembættið hafi brotið gegn stjórnsýslulögum vegna tafa á máli heilbrigðisstarfsmanns og hefur gert embættinu að ljúka máli hans eins fljótt og auðið er.
Landlæknisembættið hefur í nærri þrjú ár haft til meðferðar kvörtun aðstandenda sjúklings sem telja... | Heilbrigðisráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landlæknisembættið hafi brotið gegn stjórnsýslulögum vegna tafa á máli heilbrigðisstarfsmanns og hefur gert embættinu að ljúka máli hans eins fljótt og auðið er. |
2021 | 35 | Stefnt var að opnun skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli í dag. Vegna hlýinda og sterkra vinda verður ekki af opnuninni en forstöðumaður skíðasvæðisins fullyrðir að hægt verði að opna á morgun. | Skíðafólk á Akureyri var farið að hlakka til að spenna á sig skíðin og skunda upp í Hlíðarfjall í dag. Í gærkvöldi var gefið út að það yrði ekki mögulegt.
Brynjar Helgi Ásgeirsson er forstöðumaður Hlíðarfjalls.
Núna eru 22 metrar og 33 metrar með hviðum á svæðinu. Í gær var aðeins mildari vindur en hitastigið er 8 stig... | Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður ekki opnað í dag eins og áætlað var. |
2021 | 35 | Allt bendir til að mannleg mistök hafi valdið því að grænlenska fiskiskipið Masilik strandaði undan Vatnsleysuströnd í gærkvöldi með nítján manna áhöfn. Skipherra varðskipsins Freyju segir skipið hafa reynst frábærlega í þessari fyrstu björgun sinni. | Masilik strandaði um kvöldmatarleytið í gær, en nítján manna áhöfn var um borð, undirmenn grænlenskir en yfirmenn færeyskir. Áhöfnina sakaði ekki og voru fjórtán skipverjar fluttir strax í land. Freyja var í Hafnarfjarðarjöfn þegar strandið varð og því stutt á strandstað. Jafnframt voru þyrla, dráttarbátur og björgunar... | Mannleg mistök ollu því að grænlenska fiskiskipið Masilik strandaði undan Vatnsleysuströnd í gær, segir umboðsmaður skipsins. Áhöfn varðskipsins Freyju bjargaði skipinu af strandstað, þetta var fyrsta björgun Freyju og segir skipherrann það hafa reynst frábærlega. |
2021 | 35 | Það stefnir í metdag í hraðprófun á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við Suðurlandsbraut en áætlað er að um sjö þúsund manns verði hraðprófaðir í dag. | Búist er við um sjö þúsund manns í hraðpróf á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í dag en um tvö hundruð og tuttugu manns eru hraðprófaðir á hverju korteri. Marta María Arnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Heilsugæslunni segir að greiðlega gangi að ráða við álagið þrátt fyrir ógnvænlega röð.
Frá því að það kemur hérna í röði... | Það stefnir í metdag í hraðprófun á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við Suðurlandsbraut en búist er við um sjö þúsund manns í hraðpróf í dag. |
2021 | 35 | Jóhanna Elín Guðmundsdóttir varð í 34. sæti í undanrásum í 100 metra skriðsundi kvenna á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug í morgun. Hún er eini keppandi Íslands á mótinu. | Jóhanna Elín keppir í tveimur greinum á mótinu og var 100 metra skriðsundið fyrri greinin, en mótið er haldið í Abu Dhabi. Jóhanna Elín synti á 55,27 sekúndum í morgun og varð 34. og komst ekki áfram í undanúrslit. Hennar besti tími eru 54,74 sekúndur. 16 efstu keppendurnir komust áfram og hefði Jóhanna Elín þurft að s... | null |
2021 | 35 | Sérfræðinganefnd á vegum Sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna hefur komist að þeirri einróma niðurstöðu að mæla fremur með notkun mRNA bóluefna frá Pifzer og Moderna en þess bóluefnis sem Johnson & Johnson framleiðir. | Mat sérfræðihópsins er að bóluefnið veiti síðri vörn og því fylgi meiri og hættulegri aukaverkanir en þegar það kom fram var því hampað vegna þess hve einfalt var að geyma það. Auk þess veitti það betri vörn gegn fyrri afbrigðum veirunnar en þeim sem nú ráða ríkjum. Rannsóknir benda til að bóluefnið veiti litla vörn ge... | null |
2021 | 35 | null | Jón Gunnarsson innanríkisráðherra segir ekki hægt að fullyrða að innviðir ríkisins séu öruggir. Þeim standi ógn af nýjum öryggisgalla, Log4j en óvissustigi var lýst yfir vegna hans á mánudaginn. Það er í fyrsta sinn sem skilgreint almannavarnarstig er sett vegna netöryggismála.
Út: Eins og þessu hefur verið lýst getur ... | Jón Gunnarsson innanríkisráðherra segir ekki hægt að fullyrða að innviðir ríkisins séu öruggir. Þeim standi ógn af nýjum öryggisgalla, Log 4 j. |
2021 | 36 | Þar sem að Blönduósflugvöllur er ekki lagður bundnu slitlagi þjónar hann illa hlutverki sínu. Erfitt er fyrir sjúkraflugvélar að lenda á vellinum. vegna slæmra aðstæðna. | Bjarni Jónsson, þingmaður vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, benti á í ræðustól á Alþingi að tryggt aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu skipti miklu máli fyrir búsetuöryggi. Því væri það ótækt að flugvöllurinn á Blönduósi væri ekki lagður bundnu slitlagi.
Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður byggðarráðs Blönduósbæja... | null |
2021 | 36 | Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir að forsendur fyrir viðbótargreiðslum sem öryrkjar fengu í fyrra, vegna Covid ástandsins, eigi ennþá við og reyndar enn frekar núna vegna hærra verðlags og verðbólgu. | Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra efur sagt að örorkulífeyriskerfið ekki eiga að byggja á viðbótargreiðslum og óvæntum glaðningum. Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fengu 50 þúsund króna skattfjálsa eingreiðslu í desember í fyrra til viðbótar við desemberuppbót. Þetta var liður í Covid aðgerðum stjórnvalda. Ekki... | null |
2021 | 36 | Kvennalið Breiðabliks spilar lokaleik sinn í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld. Blikar mæta PSG í París. | Blikar hófu leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, fyrst íslenskra liða, í október. Í kvöld er komið að lokaleik Blika í riðlinum en eftir fimm leiki verma Kópavogskonur botnsæti riðilsins með eitt stig. PSG og Real Madrid eru þegar komin í 8-liða úrslit en PSG er á toppnum með fimm sigra af fimm mögulegum og því ljó... | Breiðablik og PSG eigast við í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta í kvöld. Þetta verður lokaleikur Blika í Meistaradeildinni í vetur. |
2021 | 36 | Skortur er á þriflegum, hvítskeggjuðum og rauðklæddum karlmönnum í Bandaríkjunum. Kórónuveirufaraldurinn hefur orðið til þess að mun færri jólasveinar fást til starfa fyrir þessi jól en oft áður. Þeim sem nema jólasveinafræðin hefur einnig fækkað. | Mitch Allen sem rekur fyrirtæki í Texas-ríki sem útvegar jólasveina til margvíslegra skemmtana segir að eftirspurn eftir sveinum hafi aukist um 120 prósent frá síðasta ári enda sé mun algengara nú en þá að skólar, fyrirtæki og verslanamiðstöðvar efni til jólaskemmtana. Þó hefur verið nokkuð um afbókanir vegna tilkomu O... | null |
2021 | 36 | null | Guðmundur Freyr Magnússon hefur verið dæmdur í 17 ára fangelsi á Spáni fyrir að verða unnusta móður sinnar að bana í Torrevieja í janúar í fyrra, samkvæmt spænska miðlinum Informacion, DV greindi fyrst frá. Guðmundur var einnig dæmdur til að greiða aðstandendum mannsins 100 þúsund evrur í bætur, eða tæpar 15 milljónir ... | Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í 17 ára fangelsi á Spáni fyrir að verða unnusta móður sinnar að bana í Torrevieja í janúar í fyrra, |
2021 | 36 | Miklir erfiðleikar eru í stjórnarsamstarfinu í Færeyjum eftir að tveir þingmenn stjórnarflokka hafa lýst stuðningi við tillögu stjórnarandstöðunnar um réttindabætur fyrir samkynhneigðar mæður. Jenis af Rana og Miðflokkur hans ætla að slíta stjórnarsamstarfinu ef tillagan verður samþykkt. Bárður á Steig Nielsen lögmaður... | Núverandi þriggja flokka mið-hægristjórn tók við völdum eftir kosningar í september 2019. Þá komust leiðtogar Sambandsflokksins, Miðflokksins og Fólkaflokksins að samkomulagi stjórnarmyndun og Jenis av Rana úr Miðflokknum varð menntamála- og utanríkisráðherra. Miðflokkurinn í Færeyjum er nokkuð bókstafstrúaður kristinn... | null |
2021 | 36 | Flugfélagið Play hefur flugferðir til Boston og Washington í vor, en það eru fyrstu áfangastaðir félagsins vestanhafs og verða þeir þá orðnir tuttugu og fjórir. | Miðasala fyrir Bandaríkjaflugið hefst í dag. Byrjað verður að fljúga til Washington/Baltimore 20. apríl og til Boston 11. maí. Fyrir á markaðnum með flug milli Íslands og Bandaríkjanna er Icelandair, en bandarísku flugfélögin Delta og United fljúga einnig yfir sumartímann eins og staðan er núna. Birgir Jónsson forstjór... | null |
2021 | 37 | Allir vinna gæti breyst í allir tapa ef átakinu verður ekki framhaldið á næsta ári, að mati Húseigendafélagsins. Framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, sem sinnir málefnum um fjórtán þúsund íbúðaeigenda segir það mikið hagsmunamál að halda átakinu áfram. | Húseigendafélagið sendi inn umsögn um fjárlagafrumvarpið. Þar segir að átakið Allir vinna, sem heimilar endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna endrbóta og viðhalds húsnæðis, hafi staðið vel undir nafni og skilað mjög góðum árangri. Viðhaldi og endurbótum hafi verið betur sinnt og dregið hafi mjög úr reikningslausum við... | null |
2021 | 37 | Jogginggallinn er jólagjöf ársins 2021. Þetta er niðurstaða rýnihóps Rannsóknaseturs verslunarinnar en forstöðumaður setursins segir bæði ástandið í samfélaginu og umhverfissjónarmið hafa ráðið för við valið. | Verkefnið Jólagjöf ársins hefur legið í dvala hjá Rannsóknasetri verslunarinnar frá árinu 2015. Það hefur nú verið endurvakið með nokkuð breyttu sniði og segir Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðumaður rannsóknasetursins, að gagna hafi verið aflað frá verslunum og neytendur spurðir hvað þeir vildu í jólagjöf. Eins og í... | Jólagjöf ársins 2021 er jogging gallinn. Þetta er niðurstaða Rannsóknaseturs verslunarinnar |
2021 | 37 | Hart er sótt að Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands sem hefur ekki fengið meiri mótspyrnu frá sínum eigin flokksmönnum en í gær. Níutíu og níu þingmenn Íhaldsflokksins greiddu atkvæði gegn bólusetningarpassa ríkisstjórnarinnar. | Andstaðan var meiri en stjórnmálaskýrendur höfðu spáð en nýju sóttvarnarlögin voru samt sem áður samþykkt með miklum meirihluta því flestir þingmenn Verkamannaflokksins studdu hertar sóttvarnaraðgerðir. Nýju reglurnar kveða á um að þeir sem náð hafa átján ára aldri verða að sýna fram á að vera fullbólusettir eða framví... | Níutíu og níu þingmenn Íhaldsflokksins snérust gegn Boris Johnson forsætisráðherra í gærkvöld og greiddu atkvæði gegn tillögum um hertar sóttvarnarreglur. |
2021 | 37 | Á þrettánda hundrað manns var bjargað þegar eldur kom upp í 38 hæða húsi í Hong Kong í dag. | Slökkviliðs- og björgunarmönnum í Hong Kong tókst að bjarga á þrettánda hundrað manns þegar eldur kom upp í 38 hæða byggingu í borginni. Þrettán slösuðust, þar af einn alvarlega.
Háhýsið, World Trade Center, er í verslunarhverfi í miðborg Hong Kong. Eldur kom þar upp í raflagnaherbergi í hádeginu í dag að staðartíma og... | Á þrettánda hundrað manns var bjargað þegar eldur kom upp í 38 hæða húsi í Hong Kong í dag. |
2021 | 37 | Stjarnan komst í 16-liða úrslit í bikarkeppni karla í handbolta í gær. Tvíframlengja þurfti leik liðsins við Aftureldingu til að knýja fram úrslit. | Eftir jafnan og spennandi leik í Garðabænum í gær urðu lokatölur eftir venjulegan leiktíma 29-29. Framlenging tók við og þar skoraði hvort lið þrjú mörk og staðan þá 32-32. Aftur þurfti því að framlengja. Úrslitin réðust í annarri framlengingunni en Hjálmtýr Alfreðsson skoraði þá sigurmark Stjörnunnar þegar 40 sekúndur... | Stjarnan komst áfram í 16-liða úrslit bikarkeppni karla í handbolta í gær eftir tvíframlengdan leik gegn Aftureldingu. |
2021 | 37 | Í morgun var byrjað að bólusetja börn á aldrinum fimm til ellefu ára í nokkrum Evrópulöndum. Lyfjastofnun Evrópu samþykkti í síðasta mánuði notkun bóluefnis frá Pfizer-BioNTech fyrir þennan aldurshóp. Hér á landi hefst bólusetning þess hóps tíunda janúar. | Lyfjastofnunin byggði leyfið á rannsókn þar sem þrettán hundruð börn fengu bóluefni og þrjú þeirra smituðust af veirunni, helmingi færri fékk lyfleysu og í þeim hópi greindust þrettán með veiruna.
Byrjað er að bólusetja börn í þessum aldurshópi í Þýskalandi, Spáni, Grikklandi og Ungverjalandi og fleiri lönd fylgja fljó... | null |
Dataset Description
RÚV Radio News (RRN) is an Icelandic-language abstractive summarization dataset. The dataset consists of almost 4k news stories from The Icelandic National Broadcasting Service (RÚV) collected from the years 2021 and 2022. The stories were sourced from the noon radio news program and comprises three parts for each story: an intro, the main story, and a summary. However, not all stories include all three parts.
The dataset can be used for various summarization tasks, including Intro + Main → Summary and Main → Intro. Typically, the introduction and summary provide an overview of the key points of the story, and sometimes they are identical. It's worth noting that the dataset features a significant number of COVID-19 and domestic news stories.
Citation
@inproceedings{sverrisson2023abstractive,
title={Abstractive Text Summarization for Icelandic},
author={Sverrisson, {\TH}{\'o}r and Einarsson, Hafsteinn},
booktitle={Proceedings of the 24th Nordic Conference on Computational Linguistics (NoDaLiDa)},
pages={17--31},
year={2023}
}
- Downloads last month
- 5